8 rendur – olía 30×30 – 2017

Þetta er röð lítilla mynda, eða 16 mynda sem hver er 30×30 cm. Unnið með málninguna á sama hátt og fyrr, málningin blönduð þannig að fletirnir renna til og taumar leka niður fjötinn. Liturinn er eins og í röð #20 hafður jafn og mattur út ferlið. Í lokin er síðan ferniserað yfir myndirnar á hefðbundinn hátt til að draga litinn fram. Kerfið sem myndirnar byggja á er svipað og í #20, nema hvað hver mynd er einungis 8 rendur, lárétt, á ská niður með 45° halla, lóðrétt, og á ská upp. Línurnar eru af mismundandi breidd, allt frá því að vera 5/8 af breidd flatarins í að vera 1/8 af breiddinni. Kerfið sem myndirnar byggja á ná til þriggja þátta myndskipunarinnar: liti randanna, breidd þeirra, og staðsetningu þeirra á fletinum. Hér byggja þessir þættir á kerfi út frá aukatöfum tölunnar Pí í hexadecimal-kerfi.

Post type with a slug of "product" is not registered.

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Scroll Up
Verified by MonsterInsights