12 rendur – olía 50×50 – 2017

Þetta er röð 12 olíumálverka á striga, minni en þær fyrri, eða 50×50 cm. Í þetta skiptið er unnið með málninguna á sama hátt og fyrr, málningin blönduð þannig að fletirnir renna til og taumar leka niður fjötinn. Eftir hverjar 4 umferðir er einnig nú bætt meiri olíu í litinn þannig að efri lögin hafa meiri gljáa en þau neðri. Kerfið sem þessar myndir byggja á er hins vegar ólíkt því sem er til staðar við gerð fyrri olíumálverka. Þær byggja á sama kerfi og síðustu tvær raðir blekmálverka, 12 línur þekja flötinn og er þeim raðað í þannig að 15° eru á milli landa, eins og tímamerkingar á klukkuskífu. Hver lína er nú þriðjungur af þeirri breidd sem hún gæti mögulega verið á fletinum, og því eru rendurnar misbreiðar eftir því hver stefna þeirra er. Nú er einnig gengið lengra í kerfisuppbyggingu með því að byggja bæði liti randanna og staðsetningu þeirra á fletinum á kerfi sem byggir á aukatöfum tölunnar Pí í hexadecimal-kerfi.

Post type with a slug of "product" is not registered.

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Scroll Up
Verified by MonsterInsights