Nú er ég loksins kominn heim frá Berlín og búinn að koma mér fyrir í nýja stúdíóinu á Hólmaslóð 4, úti á Granda í Reykjavík.
Í tilefni þess langar mig til að halda smá innflutningsfögnuð og bjóða vinum að taka þátt í þessum tímamótum með mér.
Til sýnis verða allmörg ný verk sem ég er búinn að vinna að undanfarið hálft ár.
Nýja stúdíóið er staðsett í álmunni á bak við Kaos og Kosmos sem blasir við þegar fólk ekur austur Fiskislóðina.